Innlent

Góðir dómar í Ástralíu

Freyr Bjarnason skrifar
Ásgeir Trausti fær góða dóma fyrir tónleika sína í Ástralíu.
Ásgeir Trausti fær góða dóma fyrir tónleika sína í Ástralíu. Vísir/Jónatan Grétarsson
Tónlistarmaðurinn Ásgeir Trausti fær mjög góða dóma fyrir tónleika sína í áströlsku borginni Melbourne á þriðjudagskvöld.

„Þrátt fyrir að hafa væntanlega þjáðst af mikilli flugþreytu mættu Ásgeir og hljómsveit hans á sviðið og hreinlega negldu þetta. Veikleikamerkin voru engin og ekki heldur vandræðaleg hlé,“ skrifaði gagnrýnandinn.

„Hljóðlátt sjálfstraust þeirra og hreinskilin fegurð tónlistarinnar sigldi þeim í gegnum kvöldið án þess að þurfa á einhverjum látum að halda. Þetta var lifandi tónlist eins einlæg og hún getur orðið.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×