Innlent

Góðar líkur á hvítum jólum

Hulda Hólmkelsdóttir skrifar
Spáð er snjókomu á Þorláksmessu og aðfangadag.
Spáð er snjókomu á Þorláksmessu og aðfangadag. Vísir/Eyþór
Góðar líkur eru á því að landsmenn muni fagna hvítum jólum, samkvæmt textaspá á vef Veðurstofunnar. Hlýindin sem leika við landið í dag eru ekki komin til að vera og má búast við því að það kólni aftur á morgun.

„Eftir daginn í dag verður meira og minna grátt á landinu, eða autt. Svo kemur snjór en hann fer aftur og kemur svo aftur að öllum líkindum á Þorláksmessu,“ segir Teitur Arason, veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands, í samtali við Vísi.

Hann tekur þó fram að enn eru sex dagar í jól og því geti margt gerst fram að því. Það eigi að rigna í dag en búast megi við éljagangi á morgun og á miðvikudag.

„Svo kemur aftur rigning á föstudaginn. Þá gæti snjórinn farið sem kemur í éljaganginum á morgun og hinn. En svo kólnar aftur á Þorláksmessu og það verður komið frost á öllu landinu á Aðfangadag og það er svona úrkomubakkar að lóna hérna við Suðurlandið, sem gætu gert jólasnjó. Mér finnst mjög líklegt að það snjói norðan- og austanlands. Gæti líka gert það sunnanlands líka.“

Þannig að landsmenn mega gera ráð fyrir hvítum jólum?

„það eru alveg góðar líkur á því nokkuð víða á landinu, að það komi jólasnjór.“

Veðurhorfur á landinu

Suðlægur vindur, 8-15 m/s og sums staðar lítils háttar væta, en þurrviðri NA-til. Fer að rigna kringum hádegi, talsverð og jafn vel mikil rigning S-til í kvöld, einnig dálítil rigning NA-til. Hiti 3 til 11 stig, hlýjast á A-landi.

Suðvestan 10-18 og víða skúrir eða él á morgun, hvassast við sjávarsíðuna, en hægari og léttir til fyrir austan. Hiti yfirleitt 0 til 5 stig.

Veðurhorfur á landinu næstu daga

Á miðvikudag:

Suðvestanátt, víða 13-18 m/s og éljagangur, en þurrt og bjart norðaustan- og austanlands. Hiti kringum frostmark.

Á fimmtudag:

Allhvöss suðvestanátt og éljagangur framan af degi, en dregur úr vindi og éljum eftir hádegi. Léttskýjað austantil á landinu. Frost 0 til 4 stig.

Á föstudag:

Gengur í allhvassa suðaustanátt með rigningu eða slyddu, einkum sunnanlands. Hiti 1 til 7 stig, hlýjast syðst. Norðaustan strekkingur og snjókoma á norðanverðu landinu um kvöldið, en þá úrkomulítið sunnantil.

Á laugardag (Þorláksmessa):

Norðaustlæg eða breytileg átt og líkur á snjókomu eða éljum í flestum landshlutum. Víða vægt frost, en hiti rétt yfir frostmarki með suðurströndinni.

Á sunnudag (aðfangadagur jóla):

Ákveðin norðaustanátt með éljum norðan- og austanlands, en líkur á snjókomu um tíma sunnanlands. Úrkomulítið á Vesturlandi. Frost 1 til 7 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×