Bílar

Góð leið til að sleppa við stöðumælasekt

Finnur Thorlacius skrifar
Eitt af því leiðinlegra í lífinu er að fá stöðumælasekt, hvað þá ef bíll manns er dreginn í burtu. Þessi dó ekki ráðalaus er hann kom að bílnum sínum uppá flutningabíl sem var í þann mund að aka með bíl hans á brott.

Hann fór upp í bílinn ofan á flutningabílnum og bakkaði honum, allnokkuð hastarlega þó ofan af flutningabílnum og ók svo á brott. Með því tók hann reyndar talsverða áhættu á skemmdum á eigin bíl og víst má telja að eitthvað hafi skemmst við þessa frumlegu aðferð.

Ef til vill eru skemmdirnar á bíl hans kostnaðasamari en það sem hann hefði þurft að borga fyrir stöðumælabrot sitt, en að minnsta kosti komst hann sinnar leiðar og kom skoðunum sínum mjög skýrt á framfæri.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×