Fótbolti

Góð aðstaða í boði Errea

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Íslenska landsliðið mun aðallega undirbúa sig fyrir leikinn stóra gegn Króatíu í Parma á Ítalíu.

Íslenska liðið dvelur þar áður en flogið verður yfir til Zagreb degi fyrir leik. Þar mun íslenska liðið ná æfingu á keppnisvellinum degi fyrir leik.

„Það er mjög gott að komast til Ítalíu á undan. Hlutlaust land þar sem við getum gert það sem við viljum gera,“ sagði Heimir Hallgrímsson landsliðsþjálfari á blaðamannafundi KSÍ í dag.

„Þarna er góð aðstaða í boði Errea. KSÍ hefur staðið sig vel í að skapa góða umgjörð hjá okkur fyrir leikinn.“

Þarna er þjálfarinn að sjálfsögðu að tala um búningaframleiðandann Errea en Ísland leikur í treyjum frá því fyrirtæki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×