Heilsa

Glugginn býr til rafmagn

sigga dögg skrifar
Vísir/Skjáskot
Sólarrafhlöður eru oft dökkar stórar skífur sem fólk setur ofan á þakið á húsum sínum. 

Rafhlöðurnar framleiða orku úr sólinni og eru því endurnýjanlegur og vistvænn orkugjafi sem er ókeypis (að því frádregnu kaupin á rafhlöðunum).

Samkvæmt vefsíðunni Náttura.is þá eru

Sólarrafhlöður eru góður kostur þar sem langt er í tengingu við orkunetið. Til dæmis í sumarbústaði eða fjallaskála. Eins má nota þær til að framleiða rafmagn til eigin nota og hafa þá 12V lýsingu í bland við hið hefðbundna 220V kerfi. 

Þó eru þær enn sem komið er dýrar því oft óhentugar hér á landi í ljósi kostnaðar orku. Þó gæti þetta breyst með batnandi tækni.

Nú hefur vísindamönnum tekist að búa til glærar sólarrafhlöður sem gætu nýst sem rúður í gluggum húsa!

Þetta gæti verið áhugavert að prófa hér á landi þar sem sólinn hangir lengur á lofti en annars staðar, svona þegar hún á annað borð lætur sjá sig.

Vísindamenn víða um heim keppast við að þróa málingu sem dregur í sig sólarljós og býr til rafmagn.

Þetta er því ekki það síðasta sem við eigum eftir að heyra frá nýtingu sólarinnar sem orkugjafa.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×