Tónlist

Glowie frumsýnir myndband við lagið No Lie

Atli Ísleifsson skrifar
Myndbandið var frumsýnt á Kexi Hosteli í gærkvöldi.
Myndbandið var frumsýnt á Kexi Hosteli í gærkvöldi.
Söngkonan Glowie frumsýndi í gær tónlistarmyndbandið við lagið „No Lie“ sem hefur ómað á flestum útvarpsstöðvum landsins í allt sumar.

Myndbandið var frumsýnt á Kexi Hosteli í gærkvöldi.

Glowie, eða Sara Pétursdóttir, sagði í samtali við Fréttablaðið að heilmikil vinna hafi verið í gerð myndbandsins.

„Ég fékk hugmyndina þegar við vorum að semja lagið. Þetta er algjört draumamyndband fyrir mig, retróstíll og mjög sumarlegt. Ég vildi sýna minn stíl og hver ég er.“

Saga Sig leikstýrir tónlistarmyndbandinu þar sem Glowie leikur ásamt vinkonum sínum. Stella Björt Bergmann Gunnarsdóttir sá um stílíseringu. „Meirihlutinn af fötunum í myndbandinu koma bara beint úr fataskápnum hennar Stellu eða úr Spúútnik. Stíllinn er alveg gjörsamlega retró alla leiðina í gegn og ég fíla það ótrúlega vel. Þetta er „old school“ og töff,“ segir Glowie.


Tengdar fréttir

Skiptir öllu að hafa trú á sjálfri sér

Glowie gefur út tónlistarmyndband á morgun við lagið "No Lie“. Með leikstjórn fór Saga Sig. Í haust ætlar Glowie að kynna afrakstur erfiðisins í Bandaríkjunum í von um að koma sér á framfæri..






Fleiri fréttir

Sjá meira


×