Sport

Glover Teixeira er hinn brasilíski Mike Tyson | Myndband

Pétur Marinó Jónsson skrifar
Næsta laugardagskvöld (eða aðfaranótt sunnudags) fer UFC 172 fram í Baltimore í Bandaríkjunum. Hæst ber að nefna að UFC léttþungavigtarmeistarinn, Jon Jones, ver titil sinn gegn hinum brasilíska Glover Teixeira. UFC 172 verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport.

Glover Teixeira hefur verið líkt við Mike Tyson og ekki að ástæðulausu. Hann er gríðarlega höggþungur og hefur sigrað 13 bardaga eftir rothögg. Vinstri krókur hans minnir um margt á vinstri krók Mike Tyson en boxarinn var fyrirmynd Teixeira í æsku. Auk þess að vera mikill rotari er hann einnig virkilega góður glímumaður en hann vann sér inn þátttökurétt á ADCC 2011 (sterkasta uppgjafarglímumót heims) þar sem hann þótti standa sig vel.

Teixeira hefur fáa veikleika og var lengi vel einn umtalaðasti bardagamaðurinn utan UFC. Það tók hann langan tíma að komast í UFC en ekki var það vegna skorts á hæfileikum. Teixeira var lengi í vandræðum með að fá vegabréfsáritun í Bandaríkjunum en þegar það loksins tókst var UFC ekki lengi að semja við hann. Teixeira hefur síðan þá sigrað alla sína 5 bardaga og litið virkilega spennandi út.

Teixeira verður að margra mati erfiðasti andstæðingur Jon Jones hingað til en í myndbandinu hér að ofan má sjá brot af hans ferli. Nánar má lesa um feril Teixeira hér.

Vísir og MMA fréttir hafa tekið höndum saman í umfjöllun um MMA. Pétur Marinó er ritstjóri MMA frétta og birtir fréttir úr MMA heiminum á Vísi. Ekki gleyma að setja "like" við Facebook síðu þeirra hér. 

MMA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×