Fótbolti

Glódís og Sara mætast í Meistaradeildinni

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Glódís Perla mætir einu besta liði Evrópu.
Glódís Perla mætir einu besta liði Evrópu. vísir/stefán
Íslensku landsliðskonurnar Glódís Perla Viggósdóttir og Sara Björk Gunnarsdóttir mætast í 16 liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu í fótbolta en dregið var í höfuðstöðvum UEFA í Nyon í morgun.

Wolfsburg, lið Söru Bjarkar, er eitt það besta í Evrópu en það tapaði úrslitaleiknum í maí fyrr á þessu ári. Eskilstuna, sem Glódís leikur með, hafnaði í öðru sæti á eftir Rosengård í Svíþjóð á síðustu leiktíð en Sara spilaði þá með sænska liðinu.

Svíþjóðarmeistarar Rosengård, sem slógu Breiðablik úr keppni í 32 liða úrslitum, mæta Slavia Prag frá Tékklandi.

Leikirnir fara fram 9.-17. nóvember.

Drátturinn í 16 liða úrslitum:

Paris Saint-Germain - BIIK Kazygurt

Barcelona - Twente

Slavia Prag - Rosengård

Manchester City - Bröndby

Brescia - Fortuna Hjörring

Lyon - Zürich

Eskilstuna - Wolfsburg

Rossijanka - Bayern München




Fleiri fréttir

Sjá meira


×