Í ljós er komið að það var Glitnir sem stóð að baki umdeildum hlutabréfakaupum í hinum gjaldþrota Roskilde Bank í Danmörku árið 2006 þegar bankinn seldi umtalsvert magn af eigin hlutabréfum.
Í frétt um málið í Jyllands Posten segir að um hafi verið að ræða 780.000 hluti í bankanum en salan á þeim vakti mikla athygli á sínum tíma enda braut hún í bága við reglur sem gilt höfðu árum saman í danska bankakerfinu þar sem ekki var greint frá því hver kaupandinn væri.
Með sölunni á þessum hlutum tókst Roskilde Bank að fegra umtalsvert bágborna eignfjárstöðu sína. Danska fjármálaeftirlitið hafði krafist þess að eiginfjárstaðan yrði bætt. Talið er að á þessum tíma hafi Rosksilde Bank þegar rambað á barmi gjaldþrots.
Sérsveit efnahagsbrotadeildar dönsku lögreglunnar hefur haft Roskilde Bank til rannsóknar síðan bankinn varð gjaldþrota árið 2009. Ríkislögmaðurinn Jens Madsen yfirmaður sveitarinnar segir að ekkert ólöglegt hafi verið við kaup Glitnis því bankarnir ætluðu að starfa saman. Það gekk ekki eftir og neyddist Roskilde Bank til að kaupa bréfin með miklu tapi af Glitni árið 2007.
Madsen segir að á sínum tíma hafi Glitnir gert kröfu um að fá mann í stjórn Roskilde Bank á grundvelli hlutanna sem Glitnir keypti. Á það hafi ekki verið fallist og því endurkeypti Roskilde Bank hlutina af Glitni. Madsen segir að í ljósi bréfaskipta milli Glitnis og Roskilde Bank frá upphafi ársins 2007 sé ekki tilefni til þess að rannsaka kaup Glitnis frekar.
Athugið. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Vísir hvetur lesendur til að halda sig við málefnalega umræðu. Einnig áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi eða ósæmilegar athugasemdir.
Hlutabréf hafa hækkað svo mikið í verði það sem af er þessu ári að fjárfestar eru í auknum mæli farnir að veðja á að markaðurinn hrynji og það í stórum stíl.
Meira
Einn af geimflaugaskotpöllum NASA, Geimvísindastofnunnar Bandaríkjanna, á Canaveral höfða í Flórída er til leigu. Um sögufrægan skotpall er að ræða því hann var notaður til að skjóta á loft fyrstu mön...
Meira
Aston Martin DB4 GT var nýlega seldur á yfir 3,2 milljónir punda eða um 600 milljónir kr. á uppboði hjá Bonhams. Þetta er þar með dýrasti Aston Martin bíll sögunnar.
Meira
Angela Merkel kanslari Þýskalands er áfram valdamesta kona heimsins. Þetta kemur fram á árlegum lista Forbes tímaritsins um 100 valdamestu konurnar. Merkel var einnig á toppi listans í fyrra.
Meira
Samkeppnisyfirvöld innan Evrópusambandsins hafa útvíkkað rannsókn sína á meintu samráði um skráð heimsmarkaðsverð á olíu hjá þremur af stærstu olíufélögum Evrópu og ráðgjafafyrirtækisins Platts.
Meira
Dow Jones vísitalan sló enn eitt metið á Wall Street í gærkvöldi en hún hækkaði um 0,34% og endaði í rúmlega 15.387 stigum sem er hæsta gildi vísitölunnar í sögunni.
Meira
Axcel sjóðurinn hefur sett 10% hlut í skartgripaframleiðandanum Pandóru í sölu. Það eru J.P. Morgan Securities og Nordea Markets sem annast söluna á þessum hlut en reiknað er með að sölunni ljúki í da...
Meira
Manchester United fékk tæplega 61 milljón punda eða ríflega 11,3 milljarða króna í sjónvarpstekjur fyrir síðasta keppnistímabil í ensku Úrvalsdeildinni. Liðið varð sem kunnugt er Englandsmeistari í vo...
Meira
Afþreyingarveitan Netflix mun tapa rétt tæplega 1.800 kvikmyndum og sjónvarpsþáttum í þessum mánuði. Ástæðan er að samningar sem Netflix hefur við MGM, Universal og Warner Bros. renna út fyrir mánaðar...
Meira
Sérstök deild tölvuþrjóta innan kínverska Alþýðuhersins er aftur komin á kreik og reynir að ráðast inn í tölvukerfi fyrirtækja og opinberra stofnana í Bandaríkjunum. Markmiðið er m.a. stórtækur þjófna...
Meira
Apple, verðmætasta fyrirtæki heimsins, hefur verið sakað um viðamikil skattaundanskot í Bandaríkjunum, raunar ein þau mestu í sögunni. Af þessum sökum hefur Tim Cook forstjóri Apple verið kallaður fyr...
Meira
Apple er áfram verðmætasta fyrirtæki heimsins en verðmæti þess er 185 milljarðar dollara. Þetta kemur fram í árlegum lista sem unninn er af WPP og Millward Brown. Apple var einnig efst á listanum í fy...
Meira
Actavis hefur fest kaup á írska lyfjafyrirtækinu Warner Chilcott. Kaupverðið var 5 milljarðar dollara eða um 617 milljarðar kr. og verður það greitt í formi hlutafjár í sameinuðu félagi Actavis og War...
Meira
Tæknifyrirtækið Yahoo! mun í dag staðfesta kaup sína á Tumblr, vinsælasta bloggkerfi veraldar. Með þessu freistar nýr forstjóri Yahoo! að endurreisa forna frægð fyrirtækisins sem barist hefur í bökkum...
Meira
Kínverjar hafa dregið úr álframleiðslu sinni á þessu ár um eina milljón tonna og munu sennilega draga úr henni um 2 milljónir tonna fyrir árið 2015. Ástæðan er verðlækkanir á heimsmarkaðsverði á áli o...
Meira