Glitnir á 963 milljarða upp í skuldir Jón Hákon Halldórsson skrifar 4. mars 2015 08:00 Hlutur bankans í snjóhengjunni er 313 milljarðar íslenskra króna.
Eignir slitabús Glitnis banka nema tæplega 963 milljörðum íslenskra króna en kröfurnar nema 2.271 milljarði króna. Búið á því um það bil 42 prósent upp í kröfur. Við það bætast um 80 milljarðar króna sem forgangskröfuhafar hafa þegar fengið greiddar. Neikvætt eigið fé hefur farið úr 1.417 milljörðum króna í lok árs 2013 í 1.322 milljarða í lok síðasta árs. Þetta kom fram á kynningu á kröfuhafafundi í gær, en glærur frá kynningunni voru birtar á vef bankans í gær. Stærstur hluti eigna bankans er handbært fé og samsvarar það 660,5 milljörðum í íslenskum krónum. Næststærsti hlutinn er eign í Íslandsbanka sem nemur tæplega 175 milljörðum króna. Samtals nema krónueignir 313,6 milljörðum króna. Að frádregnum eignarhlutnum í Íslandsbanka nema krónueignir því um 138 milljörðum króna. Eignir í evrum samsvara tæplega 232 milljörðum króna og eignir í dollurum samsvara 163 milljörðum króna. Eignir í norskum krónum samsvara rúmum 99 milljörðum og eignir í breskum pundum 98 milljörðum. „Þessir 313 milljarðar eru okkar hluti í snjóhengjunni,“ segir Kristján Óskarsson, framkvæmdastjóri Glitnis. Ef Íslandsbanki yrði seldur fyrir erlent fé þá stæðu eftir 138 milljarðar í íslenskum krónum sem þyrfti þá að leysa með einhverjum öðrum hætti. „Þess vegna skiptir afar miklu máli að geta selt Íslandsbanka fyrir erlent fé,“ segir Kristján. Kristján segir jafnframt að það sé mikilvægt að átta sig á því að það fé sem er erlendis hefur aldrei komið til Íslands og hefur ekkert með íslenskt efnahagskerfi að gera. Þó það yrði borgað út þá myndi það ekki hafa nein áhrif á Íslandi.
Mest lesið Kakóverð aldrei hærra og verðhækkanir á súkkulaði rétt að byrja Neytendur Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Viðskipti innlent Hvað er opið um páskana? Neytendur Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Viðskipti innlent Íslendingar duglegastir í heimi að kaupa Samsonite-ferðatöskur Samstarf Stjörnugrís sektaður fyrir íslenskan fána Neytendur Rússar flytja inn eldsneyti eftir drónaárásir Viðskipti erlent Páskaeggin frá Nóa Síríus vinsælust Neytendur Trump græddi milljarða dala í dag Viðskipti erlent Súkkulaði frá Nóa hækkar mest á meðan Freyja lækkar Neytendur Fleiri fréttir Meirihluti óánægður með áform Landsbankans Tuttugu milljóna hámark sett á einstaklinga Lok, lok og læs hjá Gló Hefð fyrir sumargjöf í Íslandsbanka Hundrað þúsund kall á haus Ísland ekki nógu spennandi áfangastaður fyrir Ryanair Yfirmaður hjá Alvotech fékk 300 milljóna kaupauka Ráðinn nýr lögfræðingur hjá ÖBÍ Húsnæðisliðnum um að kenna en von á breytingum Fundar með Bankasýslunni í dag Bankasýslan þögul sem gröfin Festi vill sættast við Samkeppniseftirlitið Verðbólga eykst á ný Deildar meiningar um hvað sagt var í símtali Segir skilið við SVÞ eftir sextán ár í starfi Ætlar ekki að tjá sig fyrir aðalfund Landsbankans Skál flytur úr mathöllinni Fyrirhuguð löggjöf muni ekki laga leigumarkað í lamasessi Telja sig hafa gert nóg til að upplýsa Bankasýsluna Bankaráð Landsbankans svarar fyrir sig Opna nýja frjósemismiðstöð á haustmánuðum Fjárfestar líta í síauknum mæli til mikilvægis kynjajafnréttis Leiðinlegt með loðnuna en svona er þetta bara Pizzan reynir að eigna sér Megaviku Domino's Ráðinn framkvæmdastjóri úr hópi 27 umsækjenda Jón hættir sem stjórnarformaður Sýnar Eydís og Þorvaldur til Genís Setur 100 milljónir í að leiðrétta erlendan fréttaflutning um eldgosin Bein útsending: Orkuöryggi – Hverju getum við áorkað? Hitnar í fasteignamarkaði vegna íbúðakaupa Grindvíkinga Sjá meira