Bíó og sjónvarp

Glímir við fyrrverandi útsendara Sovétríkjanna

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Chris Evans snýr aftur sem Captain America.
Chris Evans snýr aftur sem Captain America.
Kvikmyndin Captain America: The Winter Soldier verður frumsýnd á Íslandi á morgun, föstudag. Í henni þarf Captain America, sem heitir réttu nafni Steve Rogers, að snúa aftur til starfa til að kljást við sinn öflugasta andstæðing til þessa – The Winter Soldier, fyrrverandi útsendara Sovétríkjanna.

Sebastian Stan túlkar The Winter Soldier, eða Vetrarhermanninn, og undirbjó sig vel fyrir hlutverkið. Hann æfði stíft í fimm mánuði og sökkti sér í sögubækurnar.

„Ég dembdi mér í sögu kalda stríðsins, ég kannaði KGB. Ég horfði á alls kyns njósnamyndir og heimildarmyndir um þennan tíma og um hvað hann snerist,“ segir Sebastian.

Nýja myndin gerist tveimur árum eftir atburðina í fyrri myndinni, Captain America: The First Avenger, sem frumsýnd var árið 2011. Leikarinn Chris Evans snýr aftur í hlutverki kafteinsins og á móti honum leikur kynbomban Scarlett Johansson. Þau skrifuðu mörg af samtölunum sín á milli í myndinni en áður en tökur hófust höfðu þau unnið að þremur myndum saman – The Perfect Score árið 2004, The Nanny Diaries árið 2007 og The Avengers árið 2012.

Jálkurinn Robert Redford leikur einnig í myndinni en hann vildi ólmur taka hlutverkið að sér því afabörnin hans eru aðdáendur Marvel-myndasagnanna og Captain America er eins og margir vita úr myndasögunum.

Myndinni var afar vel tekið á frumsýningarhelginni í Bandaríkjunum og skilaði áttatíu milljónum dollara í kassann í miðasölutekjum, rúmum níu milljörðum króna. Utan Bandaríkjanna þénaði hún 75,2 milljónir dollara fyrstu vikuna, tæplega átta og hálfan milljarð króna.

Í öðrum hlutverkum eru Frank Grillo, Samuel L. Jackson, Anthony Mackie og Dominic Cooper.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×