Körfubolti

Gleymdi dóttur sinni í sigurvímu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Benedikt Guðmundsson til vinstri. Pavel Ermolinskij og Jón Arnór styðja við meiddan Hlyn Bæringsson að leik loknum í gær.
Benedikt Guðmundsson til vinstri. Pavel Ermolinskij og Jón Arnór styðja við meiddan Hlyn Bæringsson að leik loknum í gær. Vísir/ÓskarÓ
Íslenska karlalandsliðið í körfubolta vann frækinn sigur á Bretum í undankeppni Evrópumótsins í gærkvöldi en leikið var í London. Með sigrinum tryggðu íslensku strákarnir því sem næst sæti sitt í lokakeppni EM á næsta ári. Liðið hefur tryggt sér annað sætið í riðlinum og raunar er framundan úrslitaleikur um efsta sætið við Bosníu í Laugardalshöllinni á miðvikudaginn.

„Ég held að það séu meiri líkur á heimsendi en að við förum ekki á EM,“ segir körfuknattleiksþjálfarinn Benedikt Guðmundsson. Allt þurfi að fara á versta veg í hinum riðlunum í undankeppninni og því sé algjörlega fjarri að það geti gerst.

Benedikt lýsti leiknum á RÚV og skemmti sér konunglega. Íslenska liðið var undir fram í síðari hálfleik en með mikilli þrautseigju jöfnuðu strákarnir metin, komust yfir og sigldu sigrinum í hús í fjórða leikhluta. Benni missti sig af gleði í útsendingunni líkt og leikmenn og þjálfarar í Koparhöllinni í London.

„Þetta var náttúrulega með ólíkindum. Ég veit ekki hvar ég var eftir þennan leik,“ segir Benni. „Ég er nokkuð viss um að ég hafi bara bullað eitthvað í settinu því ég vissi varla hvar ég var.“

Benedikt þjálfar karlalið Þórs í Þorlákshöfn þar sem hann er búsettur. Að lokinni útsendingu í Efstaleiti brunaði hann sem leið lá um Þrengslin heim í Þorlákshöfn. Hann gleymdi hins vegar einu.

„Ég var að renna inn í Höfnina þegar ég fattaði að stelpan mín var ekki með mér,“ segir Benedikt. Dóttir Benna hafði verið með honum í höfuðborginni en var í heimsókn hjá vinkonu sinni. Hún hafði ekki áttað sig á því að pabbi hennar hefði gleymt sér. Taldi honum bara hafa seinkað.

„Við fórum bara í góða pizzzu og málið dautt. Svo gerir maður bara grín að sjálfum sér,“ segir þjálfarinn eldhress.

Jón Arnór í leiknum í gær.Mynd/KKÍ
Innkoma Jóns skipti öllu

Jón Arnór Stefánsson hafði ekki spilað með íslenska liðinu í fyrstu tveimur leikjunum í undankeppninni gegn Bretum og Bosníu. Jón Arnór vildi ekki taka áhættuna á því að meiðast en hann leitar sér nú að nýju félagi í Evrópu.

Þegar ljóst var að Ísland gæti svo gott sem tryggt sæti sitt á EM með sigri í London sló Jón Arnór til. Hann hélt utan ásamt Helga Má Magnússyni og styrkti liðið eðlilega mjög mikið. Hann skoraði 23 stig og gátu strákarnir leitað til síns reynslumesta manns þegar taugarnar voru þandar í lokafjórðungnum.

„Við hefðum ekki unnið leikinn ef hans hefði ekki notið við í fjórða leikhluta,“ segir Benni. Liðið hafi staðið sig mjög vel í hinum leikjunum tveimur án hans en Jón Arnór hafi gert gæfumuninn í gær.

„Að fá hann inn í gær var algjörlega ómetanlegt. Þá meina ég að hafa hann í fjórða leikhluta. Hann er leiðtogi liðsins og hans nærvera, einbeiting og hæfileikar skipta miklu máli.“

Landsliðið fyrir leikinn í London í gær.Mynd/KKÍ
Líður eins og afa

Benedikt steig sín fyrstu skref sem þjálfari á tíunda áratugnum í yngri flokkum KR í Vesturbænum. Jón Arnór, Jakob Sigurðarson, Helgi Már Magnússon og Hlynur Bæringsson eru allir fæddir á því herrans ári 1982 og nutu leiðsagnar Benna á sínum tíma.

„Þú getur ímyndað þér hvað þetta gleður mig. Við byrjuðum eiginlega allir saman í körfunni. Þeir byrjuðu að æfa og ég var að byrja að þjálfa. Þetta var upphafið hjá okkur öllum þannig lagað. Við fylgdumst að lengi,“ segir Benni. Engin leið sé þó að þakka einum manni hve góðir leikmenn pjakkarnir urðu.

„Það eru svo margir sem hafa komið að þessu. Hundruð manna hafa komið að þessum strákum og gert þá að því sem þeir eru. Ingi Þór (Steinþórsson), Frikki Rúnars (Friðrik Ingi Rúnarsson) og ég gæti talið upp endalaust,“ segir Benni og nefnir einnig stjórnarfólk sem skapað hafi umgjörðina.

Hann líti ekki á strákana sem börnin sín en hann fái þó skrýtna tilfinningu þegar þeir eignist börn.

„Þetta er auðvitað fáránlegt en þegar þessir guttar eignast börn þá líður mér eins og ég sé að verða afi,“ segir Benni og hlær.

Hlynur Bæringsson á vítalínunni í gær.Mynd/KKÍ
Færi alltaf á EM

Óljóst er hvar úrslitakeppni EM á næsta ári fer fram. Efsta liðið í hverjum riðlanna sjö kemst í úrslitakeppnina og sömuleiðis sex lið af sjö sem hafna í öðru sæti.

Benni segist ekkert vera að pæla í úrslitum í öðrum leikjum. Hans hugur er við leikinn gegn Bosníu á miðvikudaginn.

„Ég ætla að mæta í Höllina á miðvikudaginn til að horfa á sigur í leiknum og sigur í riðlinum,“ segir Benni og telur möguleika okkar manna ágæta. Hann vonast eftir miklum stuðningi.

„Ef það verður ekki full höll er eitthvað mikið að.“

Óljóst er hvort Hlynur Bæringsson og Jón Arnór Stefánsson verði með Íslandi í leiknum. Hlynur meiddist á ökkla seint í leiknum í gær eftir að hafa tekið hetjulegt frákast sem skilaði tveimur stigum.

„Ég sá þennan snúning og sá hversu kvalinn hann var. Venjulegur maður er ekki að fara að spila á miðvikudaginn. En ég þekki Hlyn þannig að ég er nánast viss um að hann verði þarna í búning. Bara af því þetta er ofurmenni. Hann er ekkert venjulegur.“

Jón Arnór hefur ekki gengið frá samningi við nýtt félag. Óvíst er hvort leikurinn muni skipta máli enda gæti sæti Íslands á EM verið tryggt fyrir lokaleikinn. Benni segir jákvætt að sjá hve vel liðið hafi spjarað sig þrátt fyrir allt í fjarveru Jóns til þessa.

„Þeir sýndu það í þessum tveimur leikjum gegn Bretum og Bosníu að það verður líf hjá landsliðinu þegar Jón hættir.“

En ætlar Benni að fylgja íslenska landsliðinu á EM á næsta ári?

„Já, mér er alveg sama hvar það verður haldið. Ég færi til Aserbaídsjan.“


Tengdar fréttir

Leik lokið: Bretland - Ísland 69-71 | Strákarnir eru á leiðinni á EM

Íslenska körfuboltalandsliðið er á leiðinni á EM eftir frábæran 71-69 endurkomusigur á Bretum í Koparkassanum í London í kvöld. Íslenska liðið var tíu stigum undir í hálfleik en gafst ekki upp og tryggði sér sigurinn með stórkostlegum seinni hálfleik.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×