Glamour

Glamour eftirlæti: Retro Stefson gefa út lagið Malaika

Ritstjórn Glamour skrifar
Unnsteinn Manuel og Logi Pedro
Unnsteinn Manuel og Logi Pedro Glamour/Skjáskot
Ein eftirlætishljómsveit ritstjórnar Glamour, Retro Stefson, gáfu nýverið út lagið Malaika ásamt myndbandi. Hægt er að horfa á myndbandið hér að neðan.

Unnsteinn Manuel, söngvari sveitarinnar leikstýrði myndbandinu en hann hefur að undanförnu látið að sér kveða í dagskrárgerð og leikstjórn í auknu mæli. Hann leikstýrði meðal annars auglýsingu fyrir Iceland Airwaves á dögunum auk þess sem hann stýrði þættinum Hæpið síðastliðið haust. Þátturinn vann til verðlauna á nýafstaðinni Edduhátíð.

Auk Unnsteins koma fyrir í myndbandinu Logi Pedro Stefánsson og  Haraldur Ari Stefánsson.








×