Lífið

Glæsilegt raðhús flugfreyju í Breiðholti

Sindri Sindrason skrifar
Hildur Stefánsdóttir, flugfreyja hjá Icelandair býr í glæsilegu raðhúsi í neðra-Breiðholti ásamt eiginmanni og þremur strákum þeirra.

„Ég er með eindæmum skipulögð manneskja. Minn vinnustaður er flugvélar og vinn ég því í mjög þröngu rými. Þar af leiðandi hef ég lært hvernig best er að koma hlutum fyrir,“ segir Hildur og bætir við að hún sé án efa óvinsælasta manneskjan á heimilinu.

„Ég vil hafa allt í röð og reglu og þetta verða strákarnir okkar að virða.“

Hildur er snillingur í að blanda saman nýju og gömlu, dýru og ódýru þannig að heimilið verði heimilislegt.

Hér fyrir ofan má sjá sýnishorn úr þættinum Heimsókn sem sýndur verður á Stöð 2 klukkan 20.00 í kvöld.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×