Innlent

Glæsilegasta norðurljósasýning um árabil á Íslandi

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Norðurljós á himnum séð í gegnum sjónaukann á Hótel Rangá.
Norðurljós á himnum séð í gegnum sjónaukann á Hótel Rangá. Skjáskot úr myndbandinu
Sævar Helgi Bragason, formaður Stjörnuskoðunarfélags Seltjarnarness, birtir í kvöld stórbrotna norðurljósasýningu frá Hótel Rangá. Þar er að finna stærsta sjónauka landsins sem kom að góðum notum í kvöld.

„Vá! Í kvöld var glæsilegasta norðurljósasýning sem orðið hefur um árabil. Þetta myndskeið var tekið rétt í þessu frá Hotel Rangá,“ segir Sævar Helgi á Facebook.

„Magnaðasta sýning sem ég hef séð um árabil.“

Myndskeiðið er óunnið og sýnt í rauntíma. Það má sjá í háskerpu með því að smella á hnappinn niðri í hægra horninu.

Skaut eitt lítið norðurljósavídeó í kvöld frá Hotel Rangá. Magnaðasta sýning sem ég hef séð um árabil

Posted by Sævar Helgi Bragason on Thursday, August 27, 2015



Fleiri fréttir

Sjá meira


×