Enski boltinn

Glæsileg saga Liverpool í Evrópu á rúmri mínútu | Myndband

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Síðasti titill Liverpool í Evrópu vannst vorið 2005.
Síðasti titill Liverpool í Evrópu vannst vorið 2005. Vísir/Getty
Liverpool tekur þátt í sínum tólfta úrslitaleik í Evrópukeppni í kvöld þegar liðið mætir spænska liðinu Sevilla í Basel í úrslitaleik Evrópudeildarinnar.

Liverpool getur þar ekki bara orðið Evrópumeistari í níunda sinn í sögunni heldur einnig tryggt sér sæti í Meistaradeildinni 2016-2017.

Gummi Ben lýsir úrslitaleiknum á Stöð 2 Sport en útsendingin hefst klukkan 18.30 og leikurinn svo klukkan 18.45.

Liverpool hefur unnið Evrópukeppni meistaraliða og Meistaradeildina fimm sinnum og á möguleika á því að vinna UEFA-bikarinn í fjórða sinn. Ekkert annað enskt félag hefur náð viðlíka árangri í Evrópu.

Þetta verður fimmtándi leikur Liverpool í Evrópudeildinni á tímabilinu. Liðið spilaði sex leiki í riðlakeppninni (2 sigrar, 4 jafntefli) og sló síðan út Augsburg frá Þýskalandi, Manchester United frá Englandi, Borussia Dortmund frá Þýskalandi og Villarreal frá Spáni á leið sinni í úrslitaleikinn.

Liverpool hefur reyndar bara unnið sex af þessum fjórtán leikjum en aðeins einn hefur tapast og liðið hefur því komist alla leið í úrslitaleikinn á St. Jakob-Park leikvanginum í Basel í Sviss.

Liverpool gerði upp glæsilega sögu félagsins í Evrópu á rúmri mínútu í myndbandi á fésbókarsíðu sinni og má sjá það myndband hér fyrir neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×