Lífið

Balti og Lilja glæsileg á rauða dreglinum

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Baltasar og Lilja á rauða dreglinum
Baltasar og Lilja á rauða dreglinum Vísir/Getty
Baltasar Kormákur og kona hans Lilja Pálmadóttir tóku sig vel út á rauða dreglinum fyrir frumsýningu á nýjustu kvikmynd Baltasars, Everest. Frumsýning hefst klukkan 18 en kvikmyndin er opnunarhátíð kvikmyndahátíðarinnar í Feneyjum, elstu kvikmyndahátíðar í heimi, sett á laggirnar árið 1932.

Baltasar og Lilja tóku sig vel út.Vísir/Getty
Myndin segir frá leiðangri hóps göngumanna upp á topp Everest-fjallsins árið 1996 þar sem átta létu lífið. Með helstu hlutverk fara Jake Gyllenhaal, Jason Clarke, Josh Brolin og John Hawkes. Gagnrýnendur sem séð hafa myndina hafa tekið henni vel og búast við að hún verði ein af stærstu kvikmyndum ársins.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×