Tónlist

Glænýtt tónlistarmyndband frá Hafdísi Huld

Hafdís Huld gefur út glænýtt myndband við lagið Wolf.

Wolf er önnur smáskífan af  þriðju sólóplötunni Hafdísar, Home sem kom út í vor á vegum Reveal records í Evrópu og OK!Good í Bandaríkjunum.

Myndbandið er eftir Alisdair Wright.

„Ég er svo á að leggja af stað í tónleikaferðalag um landið í samstarfi við Ferðaþjónustu bænda til þess að fagna útkomu Home hér á Íslandi. Auk þess að spila 10 tónleikum ætla ég að taka upp live tónlistarmyndbönd á fallegum stöðum víðsvegar um landið og halda úti ferðabloggi,“ segir Hafdís, sem er ánægð með myndbandið.

„Ég verð á ferð og flugi um landið, en enda svo ferðina um Verslunarmannahelgina þar sem ég spila á Einni með öllu á Akureyri og á Síldarævintýrinu á Siglufirði,“ bætir Hafdís við.

„Framundan hjá mér er svo tónleikaferðalag í Evrópu í haust til þess að fylgja plötunni eftir.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×