Lífið

Glænýr þáttur af Will & Grace kom óvænt út í gær - Myndband

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gaman að sjá þau Will, Grace, Karen og Jack aftur á skjánum.
Gaman að sjá þau Will, Grace, Karen og Jack aftur á skjánum. vísir
Það muna margir eflaust eftir þáttunum Will & Grace sem voru á dagskrá á árunum 1998-2006. Þessi gamanþættir nutu gríðarlegrar vinsælda á sínum tíma og horfa margir á þættina í dag.

Tíu árum eftir að þættirnir hættu komu þau Debra Messing, Eric McCormack, Sean Hayes og Megan Mullally aftur saman en þau fóru með aðalhlutverkin í þáttunum.

Tilefnið var stuðningsmyndband fyrir Hillary Clinton, forsetaframbjóðenda, en framleitt var tíu mínútu þáttur þar sem þessir gömlu karakterar fóru á kostum.

Hér að neðan má sjá þennan skemmtilega þátt sem kom á YouTube í gær. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×