Bíó og sjónvarp

Glæný stikla úr Þröstum frumsýnd á Vísi

Stefán Árni Pálsson skrifar
Í aðalhlutverkum eru Atli Óskar Fjalarsson, Ingvar E. Sigurdsson, Rakel Björk Björnsdóttir , Kristbjörg Kjeld og Rade Serbedzija.
Í aðalhlutverkum eru Atli Óskar Fjalarsson, Ingvar E. Sigurdsson, Rakel Björk Björnsdóttir , Kristbjörg Kjeld og Rade Serbedzija.
Vísir heimsfrumsýnir glænýja stiklu úr myndinni Þrestir eftir Rúnars Rúnarssonar.

Þrestir er nýjast mynd Rúnars sem sló í gegn með Eldfjalli. Þrestir verður meðal kvikmynda í aðalkeppni San Sebastian kvikmyndahátíðarinnar á Spáni 18.-26. september og verður heimsfrumsýnd á kvikmyndahátíðinni í Toronto 11. september. 

Myndin fjallar um 16 ára pilt, sem sendur er á æskustöðvarnar vestur á firði til að búa með föður sínum sem hann hefur ekki séð í ein sex ár. Tónlist myndarinnar er samin af Kjartani Sveinssyni. 
  


Í aðalhlutverkum eru Atli Óskar Fjalarsson, Ingvar E. Sigurdsson, Rakel Björk Björnsdóttir , Kristbjörg Kjeld og Rade Serbedzija. Þrestir er framleidd af Nimbus Ísland og Nimbus film í samvinnu við Pegasus og MPfilms. Myndin er styrkt af Kvikmyndamiðstöð Íslands, danska kvikmyndasjóðnum, norræna kvikmynda- og sjónvarpssjóðnum, króatíska kvikmyndasjóðnum, Iðnaðarráðuneytinu og í samvinnu við Senu, RÚV, TV2 í Danmörku og SF í Danmörku. 
  


Þrestir kemur í almennar sýningar 16. október á vegum Senu. Hún verður frumsýnd á kvikmyndahátíðinni RIFF þann 30. september. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×