Bíó og sjónvarp

Glæný stikla úr Rogue One: A Star Wars Story

Stefán Árni Pálsson skrifar
Eflaust margir spenntir fyrir þessari mynd.
Eflaust margir spenntir fyrir þessari mynd. vísir
Framleiðendur næstu Star Wars myndarinnar, Rogue One: A Star Wars Story, birtu í nótt glænýja stiklu úr kvikmyndinni.

Rogue One fjallar um sveit uppreisnarmanna sem stelur teikningunum að Helstirninu. Hún gerist í raun áður en söguþráður New Hope byrjar.

Myndin var meðal annars tekin upp við Hjörleifshöfða og Hafursey á Mýrdalssandi. Leikstjóri er Gareth Edwards, sem er hvað þekktastur fyrir kvikmynd sína um Godzilla. Þá leika þau Felicity Jones, Mads Mikkelsen, Forest Whitaker og fleiri í myndinni.

Hún verður frumsýnd þann 16. desember næstkomandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×