Bíó og sjónvarp

Glæný stikla úr Prison Break: Allt gert til að bjarga Scofield

Stefán Árni Pálsson skrifar
Michael aftur í veseni.
Michael aftur í veseni.
Fimmta serían af Prison Break er væntanlega en sex ár eru liðin frá lokaþættinum í fjórðu seríu þáttaraðarinnar.

Nú hefur verið birt önnur stikla úr nýjustu þáttaröðinni en þar kemur í ljós að Michael Scofield er á lífi en annað hafði verið gefið í skyn undir lok síðustu þáttaraðar. Fram kemur að nú er Scofield fangi í Mið-Austurlöndunum.

Wentworth Miller og Dominic Purcell fara sem fyrr með aðalhlutverk þáttanna en þeir leika bræðurna Lincoln Burrows og Michael Scofield.

Enn einu sinni er Scofield kominn í fangelsi og er nú markmiðið að bjarga honum út úr því. Fjölmiðlar ytra tala um að næsta sería verði byggð upp svipað og síðasta sería af 24,  Live Another Day. 

Hér að neðan má sjá nýjustu stikluna úr þáttunum en þeir fara í loftið á vormánuðunum ársins. Þættirnir verða á dagskrá Stöðvar 2. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×