Bíó og sjónvarp

Glæný fimm mínútna stikla úr Independence Day 2

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi verður svakaleg.
Þessi verður svakaleg. vísir
Nú eru tuttugu ár liðin frá því að kvikmyndin Independence Day kom út árið 1996 og sló rækilega í gegn um allan heim.

Nú í sumar mun framhaldið koma út, og ber sú kvikmynd titilinn Independence Day: Resurgence en hún verður heimsfrumsýnd þann 23. júní. Kvikmyndaverið 20th Century Fox hefur nú gefið út glænýjan stiklu úr myndinni og er hún heilar fimm mínútur að lengd.

Geimverurnar eru mættar aftur og baráttan aldrei verið erfiðari. Þeir sem fara með aðalhlutverk í mynd númer tvö eru; Liam Hemsworth, Maika Monroe, William Fichtner, Judd Hirsch og að sjálfsögðu þeir Jeff Goldblum og Bill Pullmann. Will Smith verður aftur á móti fjarri góðu gamni að þessu sinni.

Hér að neðan má sjá þessa mögnuðu stiklu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×