Glamour

Givenchy sýnir fyrir almenning

Ritstjórn skrifar
Tískuhúsið Givenchy sýnir í fyrsta sinn á tískuvikunni í New York, í tilefni af opnun verslunar þeirra á Manhattan.

Venjulega hafa sýningar merkisins verið haldnar í París fyrir vel valda aðila innan tískuheimsins og þekktra stjarna. En nú getur venjulegt fólk, sem lengi hefur dreymt um að mæta á alvöru tískusýningu, loksins mætt. 

Givenchy hefur tilkynnt að almenningi verði einungis boðið á sýninguna. Um 800 miðar verða í boði og verður hægt að nálgast þá á heimasíðu sem tilkynnt verður seinna í dag. 

Hversvegna Riccardo Tisci, yfirhönnuður merkisins, og hans teymi hafa valið að fara þessa leið er óljóst en spennandi verður að fylgjast með hvort andrúmslofið verði annað á sýningunni sem haldin verður þann 11. september. 

Riccardo Tisci, yfirhönnuður Givenchy
Fylgstu með Glamour á Instagram og á Facebook.






×