Innlent

Gistir fangageymslu vegna líkamsárásar

Kristín Ólafsdóttir skrifar
Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvar eða hvenær árásin var framin.
Ekki kemur fram í dagbók lögreglu hvar eða hvenær árásin var framin. vísir/eyþór
Einn er nú í haldi lögreglu vegna líkamsárásar og brots á vopnalögum, að því er fram kemur í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.

Viðkomandi gisti fangageymslu. Hvorki kemur fram hvar né hvenær árásin var framin og heldur ekki um hvers konar brot á vopnalögum var að ræða.

Þá voru tveir aðilar teknir vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna en nóttin var að öðru leyti róleg, að því er segir í dagbók lögreglu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×