Viðskipti innlent

Gistinóttum fjölgar um 14 prósent

ingvar haraldsson skrifar
Sifellt fleiri ferðamenn heimsækja Ísland.
Sifellt fleiri ferðamenn heimsækja Ísland. vísir/vilhelm
Gistinóttum á hótelum hér á landi í mars fjölgaði um 14 prósent miðað við mars 2014. Alls voru gistinætur 216.900. Þetta kemur fram í gögnum frá Hagstofu Íslands.



Gistinætur erlendra gesta voru 86 prósent af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 19 prósent frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fækkar um 8 prósent milli ára.

Á tímabilinu apríl 2014 til mars 2015 var heildarfjöldi gistinótta 2.409.700 sem er 14 prósent fjölgun milli ára.

Flestar gistinætur á hótelum í mars voru á höfuðborgarsvæðinu eða 156.700 sem er 8 prósent aukning miðað við mars 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 31.000. Erlendir gestir með flestar gistinætur í mars voru; Bretar 70.600, Bandaríkjamenn með 41.200, og Þjóðverjar með 17.500 gistinætur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×