Viðskipti innlent

Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 17%

Sæunn Gísladóttir skrifar
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 18% á síðasta ári.
Gistinóttum á hótelum fjölgaði um 18% á síðasta ári. Vísir/Vilhelm
Gistinætur á hótelum í ágúst voru 336.700 sem er 17% aukning miðað við ágúst 2014. Gistinætur erlendra gesta voru 92% af heildarfjölda gistinátta í mánuðinum en þeim fjölgaði um 19% frá sama tíma í fyrra á meðan gistinóttum Íslendinga fjölgaði um 2%. Þetta kemur fram í frétt Hagstofunnar.

Flestar gistinætur á hótelum í ágúst voru á höfuðborgarsvæðinu eða 187.600 sem er 19% aukning miðað við ágúst 2014. Næst flestar voru gistinætur á Suðurlandi eða um 56.000. Erlendir gestir með flestar gistinætur í ágúst voru; Bandaríkjamenn með 66.700, Þjóðverjar með 61.450 og Bretar með 31.100 gistinætur.

Á tólf mánaða tímabili september 2014 til ágúst 2015 voru gistinætur á hótelum 2.605.003 sem er fjölgun um 18% miðað við sama tímabil ári fyrr.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×