Lífið

Gísli Pálmi segist aldrei hafa séð jafn mikið af eiturlyfjum

Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar
„Þetta er bara alvöru tónlist. Þeir sem fýla alvöru tónlist bara elska þetta, það er ástæðan fyrir því að tekið er svona vel í þetta.“
„Þetta er bara alvöru tónlist. Þeir sem fýla alvöru tónlist bara elska þetta, það er ástæðan fyrir því að tekið er svona vel í þetta.“ vísir/vilhelm
Rapparinn Gísli Pálmi Sigurðsson segist aldrei hafa ætlað sér að verða fyrirmynd annarra. Það sé ekki og verði ekki stefnan. Hann vinni sína vinnu af heiðarleika og hreinskilni og af því skýrist velgengnin. Þrátt fyrir gagnrýni muni hann ekki hætta að segja sögu sína og sannleikann

„Hvaða góðir tónlistarmenn eru góðar fyrirmyndir? Það er ekki það sem ég er að reyna að skapa. Þetta er bara lífsreynslan mín og ég reyni meira að segja að fela hlutina, dempa þá niður og dulkóða þá. Auðvitað er þetta gróft sums staðar en þetta er raunveruleikinn eins og hann er,“ sagði Gísli Pálmi í þættinum Rokklandi á Rás 2 í dag.

Rapparinn virðist vekja athygli hvert sem hann er. Óvægin tónlist hans, framkoma og talsmáti vekur ávallt umtal en hann lætur það lítið á sig fá. Hann gaf út sína fyrstu plötu á dögunum sem varð afar vinsæl. Svo mjög að hún rauk upp vinsældarlistana og fólk beið í röðum eftir að ná eintaki.

„Ekki ég sem er að selja dópið lengur“

„Þetta er bara alvöru tónlist. Þeir sem fýla alvöru tónlist bara elska þetta, það er ástæðan fyrir því að tekið er svona vel í þetta. Ég er ekkert að bulla, það þekkja margir söguna mína og vita að það sem ég er að gera er bara ekta. Ég hef ekkert að fela og hef aldrei falið neitt,“ sagði hann í viðtalinu og bætti við að engir aðrir tónlistarmenn hafi þorað að segja söguna á þennan hátt, en lögin hans snúast meira og minna um eiturlyf og annað misferli.

„Það er mjög mikið af eiturlyfjum í samfélaginu okkar. Ég hef aldrei séð jafn mikið. Venjulega voru það háskóla- og framhaldsskólakrakkarnir sem voru á móti því en ekki í dag [....] En það er ekki ég sem er að selja dópið lengur,“ sagði hann. Aðspurður hvort hann hefði selt fíkniefni sagði hann: „Það er alveg ótengt tónlistinni.“

Viðtalið við hann má heyra á vefsíðu RÚV.


Tengdar fréttir

Ný plata Gísla Pálma: Varð að fanga tímabilið með plötu

Rapparinn Gísli Pálmi hefur nú lokið við plötuna sína, sem ber einfaldlega titilinn Gísli Pálmi. Hún kemur út eftir tvær vikur. Á plötunni sýnir Gísli Pálmi á sér nýjar hliðar, bæði í textagerð og lagasmíðum.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×