Bíó og sjónvarp

Gísli Örn og Baltasar Breki leika bræður í 220 milljóna króna mynd

Birgir Olgeirsson skrifar
Gísli Örn Garðarson leikur annað aðalhlutverkið í myndinni.
Gísli Örn Garðarson leikur annað aðalhlutverkið í myndinni. Vísir
Kvikmyndagerðarmaðurinn Börkur Sigþórsson er nú við tökur á kvikmyndinni Vörgum og hefur samið um að leikstýra fjórum þáttum í næstu þáttaröð af Ófærð.

Frá þessu er greint á vef Screen Daily en þar kemur fram að tökurnar á Vörgum, eða Mules eins og hún kallast á ensku, hafi hafist 25. febrúar síðastliðinn og muni standa yfir í 30 daga. Verður myndin tekin í Reykjavík og við nágrenni borgarinnar en einnig munu tökur fara fram á Keflavíkurflugvelli.

Agnes Johansen og Baltasar Kormákur eru framleiðendur myndarinnar en myndin nýtur stuðnings frá Kvikmyndamiðstöð Íslands og Ríkisútvarpsins. WestEnd Films mun sjá um dreifingu myndarinnar.

Bræður í vanda

Myndin segir frá íslenskum bræðrum sem skipuleggja fíkniefnasmygl til landsins.

„Þeir áttu báðir erfitt uppdráttar í æsku en líf þeirra tók þó ólíka stefnu. Eldri bróðirinn er háttsettur lögfræðingur en ferillinn hangir á bláþræði eftir að hafa dregið sér fé frá umbjóðendum sínum,“ segir Agnes Johansen um myndina við Screen Daily.

„Hann þarfa að finan leið til að endurgreiða þeim og leitar því til bróður síns, sem á nokkra fangelsisdóma á bakinu, til að hjálpa honum að flytja fíkniefni til landsins,“ segir Agnes.

Ráða burðardýr

Bræðurnir ráða því unga pólska konu sem burðardýr. „Þeir lenda þó í miklum vandræðum. Myndin fjallar um hvernig þeir takast á við þau vandræði,“ segir Agnes.

Bræðurnir eru leiknir af Gísla Erni Garðarssyni, sem vann nýverið Edduna fyrir aukahlutverk sitt í Eiðinum, og Baltasar Breka Samper, sem er hvað þekktastur fyrir leik sinn í Ófærð, sem er sonur Baltasars Kormáks.

Pólska leikkona Anna Próchniak mun leika burðardýrið en danska leikkonan Marijana Jankovic leikur lögreglukonu í myndinni sem öðrum bróðurnum er afar illa við.

Á vef Screen Daily er greint frá því að Ingvar E. Sigurðsson muni fara með lítið hlutverk í myndinni.

220 milljóna króna mynd

Myndin er sögð kosta um 220 milljónir íslenskra króna en Bergsteinn „Besti“ Björgúlfsson mun sjá um tökur myndarinnar en Elísabet Ronaldsdóttir mun klippa hana.

Agnes Johansen segir við Screen Daily að Börkur Sigþórsson sé falinn demantur sem áhorfendur eigi eftir að uppgötva almennilega.

Börkur leikstýrði tveimur þáttum af fyrstu þáttaröð Ófærðar en RVK Studios hefur nú þegar ráðið hann til að leikstýra fjórum þáttum í næstu þáttaröð.

Tökur á Ófærð 2 eiga að hefjast í haust en handritsteymi vinnur nú að tíu þáttum. Lítið er vitað um söguþráð þáttanna en vitað er að Ólafur Darri Ólafsson mun snúa aftur sem lögreglustjórinn Andri.

Baltasar Kormákur er sagður eiga að leikstýra tveimur þáttum í Ófærð 2, en það mun ráðast af því hvernig tökur á myndinni Adrift mun ganga.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×