Golf

Gísli og Aron Snær spila til úrslita | Ný nöfn á báða bikara

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Gísli Sveinbergsson og Aron Snær Júlíusson  spila til úrslita hjá körlunum en Ragnhildur Kristinsdóttir og Berglind Björnsdóttir hjá konunum.
Gísli Sveinbergsson og Aron Snær Júlíusson spila til úrslita hjá körlunum en Ragnhildur Kristinsdóttir og Berglind Björnsdóttir hjá konunum. Mynd/Golfsamband Íslands
Ný nöfn verða rituð á verðlaunagripina í KPMG-bikarana sem er keppt um á Íslandsmótinu í holukeppni.

Það var mikið um að vera á Hólmsvelli í Leiru í dag þar sem leiknar voru tvær umferðir í KPMG-bikarnum, Íslandsmótinu í holukeppni 2016 á Eimskipsmótaröðinni í karla og kvennaflokki.

Í karlaflokki mætast Gísli Sveinbergsson úr Keili Hafnarfirði  og Aron Snær Júlíusson úr GKG í úrslitaleiknum.  Í kvennaflokki eigast við GR-ingarnir Ragnhildur Kristinsdóttir og Berglind Björnsdóttir.

Úrslitaleikirnir fara fram þriðjudaginn 21.  júní og hefjast þeir kl. 9.50 og 10.00 á Hólmsvelli í Leiru.

Um bronsverðlaunin leika Theodór Emil Karlsson úr GM og Andri Már Óskarsson úr GHR. Í kvennaflokki eigast við Ingunn Einarsdóttir úr GKG og Signý Arnórsdóttir úr GK - en hún hefur tvívegis fagnaði sigri í þessari keppni.

Leikirnir um þriðja sætið hefjast 9.30 og 9.40.

Úrslit í 8-manna úrslitum karla urðu eftirfarandi:

Gísli Sveinbergsson, GK - Magnús Lárusson, GJÓ - 5/4.

Andri Már Óskarsson, GHR - Ólafur Björn Loftsson, GKG - Andri sigraði á 19. holu.

Theodór Emil Karlsson, GM - Arnór Snær Guðmundsson, GHD - 3/1.

Aron Snær Júlíusson, GKG - Rúnar Arnórsson, GK -2/1.

Úrslit í 8-manna úrslitum kvenna urðu eftirfarandi:

Ingunn Einarsdóttir, GKG - Þórdís Geirsdóttir, GK - 5/4.

Berglind Björnsdóttir, GR - Hafdís Alda Jóhannsdóttir, GK - 3/2.

Signý Arnórsdóttir, GK - Særós Eva Óskarsdóttir, GKG -3/1.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR - Jódís Bóasdóttir, GK -3/2.

Úrslit í undanúrslitum kvenna:

Berglind Björnsdóttir, GR - Ingunn Einarsdóttir, GKG - 3/2.

Ragnhildur Kristinsdóttir, GR - Signý Arnórsdóttir, GK - 4/3.

Úrslit í undanúrslitum karla:

Gísli Sveinbergsson, GK - Andri Már Óskarsson, GHR - 4/3.

Aron Snær Júlíusson, GKG - Theodór Emil Karlsson, GM. - 4/2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×