Menning

Gísli B. með sýningu í Smiðjunni

Stefán Árni Pálsson skrifar
Gísli er hér til hægri.
Gísli er hér til hægri.
Margt var um manninn þegar Gísli B. Björnsson, myndlistarmaður og teiknari, opnaði sýningu á verkum sínum í Smiðjunni Listhúsi að Ármúla 36 í síðustu viku.

„Líf mitt hefur tengst myndlist og sköpun frá æsku til þessa dags. Ég hef alla tíð verið innan um myndlistamenn,“ segir Gísli.

„Áhrifavaldarnir í myndlistinni eru margir; vinir, kennarar, samnemendur, samstarfsmenn og ýmsir aðrir myndlistarmenn. Myndirnar á sýningunni eru unnar með ekta olíukrít sem er sama efni og í olíulitum. Sköpun verkanna er mikil handavinna. Það er nokkurt verk að smyrja litnum á flötinn, leita að rétta tóninum og áferðinni. Koma að því aftur með gagnrýnum augum og fara yfir hvað má betur fara. Reyna að bæta og að lokum setja merki sitt á verkið. Birtan frá þungum skýjabökkum til bjartra geislatóna leikur stórt hlutverk í myndunum. Form, litir og tónar tilverunnar hafa alltaf heillað mig.“

Gísli sýnir á þriðja tug verka en viðfangsefni Gísla er landið og landslagið sjálft. Gísli hefur tengst myndlist alla sína ævi. Hann hóf myndlistarnám í Myndlista- og handíðarskóla Íslands um tvítugt og er enn með vinnustofu í gamla skólanum sínum að Skipholti 1. 

Hann fór síðar í myndlistarnám til Stuttgart í Þýskalandi. Gísli starfaði við grafíska hönnun og kennslu í greininni í 50 ár og var m.a. framkvæmdastjóri Auglýsingastofunnar hf í 20 ár. Hann hefur síðustu ár einbeitt sér að sköpun myndverka. Sýningin í Smiðjunni stendur yfir til 23. nóvember. Hér að ofan má sjá myndir frá opnuninni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×