Erlent

Gíslatökuástand í diplómatahverfi Dhaka

Jóhann Óli Eiðsson skrifar
Myndin sýnir brynvarða bíla í Dhaka. Hún er úr safni.
Myndin sýnir brynvarða bíla í Dhaka. Hún er úr safni. vísir/epa
Byssuhvellir hafa heyrst í diplómatahverfi í Dhaka, höfuðborg Bangladesh, í dag. Sagt er frá málinu á BBC.

Fregnir herma að hópur manna hafi gert árás á kaffihús sem sé vinsælt hjá erlendum íbúum landsins.

Óstaðfestir heimildir herma að gíslatökuástand standi nú yfir. Til skotbardaga kom á milli árásarmanna og lögreglu en ekki er ljóst hve margir eru sárir eða hvort einhver hafi látist.

Fréttin verður uppfærð eftir því sem frekari upplýsingar berast.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×