Enski boltinn

Giroud spenntur fyrir því að fá Vardy til Arsenal

Stefán Árni Pálsson skrifar
Þessi tveir gætu spilað saman á næsta tímabili
Þessi tveir gætu spilað saman á næsta tímabili vísir/getty
Fátt virðist geta komið í veg fyrir að Jamie Vardy, leikmaður Englandsmeistara Leicester City, gangi í raðir Arsenal.

Samkvæmt heimildum ESPN mun Vardy gangast undir læknisskoðun hjá Lundúnaliðinu í dag. Vardy fer með enska landsliðinu til Frakklands á mánudaginn og Arsenal vill því ganga frá kaupunum sem fyrst.

Olivier Giroud, leikmaður Arsenal, segir að Vardy sé spenntur fyrir því að ganga til liðs við Arsenal.

Arsenal virkjaði riftunarverð í samningi Vardys og hefur félagið boðið 22 milljónir punda í framherjann öfluga.

„Ég hef heyrt að Vardy sé mjög spenntur fyrir félagsskiptunum og þetta er bara frábærar fréttir fyrir okkur,“ segir Giroud en Vardy skoraði 24 mörk í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

„Hann er frábær leikmaður og fyrir mig er gott að fá mikla samkeppni um framherjastöðuna. Vonandi mun hann hjálpa okkur að vinna titla. Stjórinn ætlar að fá einn til tvo framherja í sumar og ég býst því við að það komi heimsklassa framherji til liðsins í sumar. Hann mun nýtast okkur vel og vonandi skora mörg mörk.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×