Matur

Girnilegar brownies með minturjóma að hætti Evu Brink

Marín Manda skrifar
Eva Brink er með spennandi uppskriftir á síðunni sinni.
Eva Brink er með spennandi uppskriftir á síðunni sinni.

Eva Brink er ungur ástríðukokkur sem heldur úti síðunni evabrink.com.



„Pabbi minn er kokkur svo það má segja að ég hafi fengið áhugann svolítið í gegnum hann. Um leið og ég flutti að heiman langaði mig að gera meira úr þessu og jafnvel deila með öðrum,“ segir Eva Brink þegar hún er spurð út í matarbloggið sitt, evabrink.com.

Eva hefur ekki einungis ástríðu fyrir matar- og kökugerð því hún stundar nám í iðnaðarverkfræði við Háskóla Íslands og er tveggja barna móðir. Viðbrögðin við matarblogginu hafa verið góð, sem hefur komið henni sjálfri örlítið á óvart.

„Það er alltaf jafn gaman að sjá og heyra að fólk nýti sér uppskriftirnar mínar og það er bara frábært að fólk sé almennt duglegt að skoða hinar ýmsu síður á netinu. Það hefur komið mér ótrúlega á óvart hve mikil traffík hefur verið á síðuna hjá mér. Ég ætla því að halda áfram að vera dugleg að deila uppskriftum og halda mig við einfalda rétti sem allir geta gert.“

Brownies með minturjóma

Fyrir 6

100 g 56% súkkulaði

120 g smjör

250 g sykur

85 g hveiti

2 egg

1 tsk. vanilludropar

½ tsk. salt

Hitið ofninn í 180°C. Klæðið 15 x 25 cm eða svipað form með bökunarpappír og smyrjið bökunarpappírinn. Bræðið súkkulaði og smjör saman í potti eða örbylgjuofni. Þeytið saman eggjum og sykri og blandið svo vanilludropunum og saltinu saman við.

Hellið súkkulaðinu og því næst hveitinu ofan í og hrærið varlega saman við með sleif. Hellið deiginu í formið og jafnið út. Bakið í 30-35 mínútur eða þar til prjónn sem stungið er í kökuna kemur hreinn upp. Leyfið kökunni að kólna og skerið svo í 6 sneiðar.



Minturjómi

500 ml rjómi

8 msk. sykur

1½ tsk. piparmintudropar

3-4 dropar grænn matarlitur

100 g suðusúkkulaði



Setjið rjóma, sykur, piparmintudropa og matarlit í skál og þeytið saman þar til rjóminn er orðinn þéttur. Saxið suðusúkkulaðið í smáa bita og blandið varlega saman við rjómann með sleif. 

Setjið örlítinn minturjóma á botn ílátanna og brownies-sneiðarnar ofan á. Toppið svo með meiri minturjóma og gjarnan súkkulaðispæni og Remi-mintukexi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×