Innlent

Girðingar í góðu standi en hreindýr drepast úr hor

Erla Hlynsdóttir skrifar
Bæjarstjóri Hornafjarðar segir girðingar í góðu lagi í landi Flateyjar í Mýrum. Því ættu engin hreindýr að flækjast í þeim og drepast. Hins vegar sé það áhyggjuefni að hreindýr í Hornafirði hafi drepist úr hor á undanförnum dögum og því sé brýnt að rannsaka beitarþol.

Fréttastofa greindi frá því í gær að tveir dýraverndunarsinnar hefðu kært sveitarfélagið, auk þess að kæra fyrirtækið Lífsval og bónda á svæðinu. Kærendur líta svo á að brot á girðingarlögum hafi leitt til brota á lögum um dýravernd. Þannig felist meint brot bóndans og Lífsvals í því að þau hafi sinnt viðhaldi á girðingum, og meint brot sveitarfélagsins í að það hafi ekki látið fjarlægja ónýtar girðingar.

Hjalti Þór Vignisson, bæjarstjóri Hornafjarðar, segir að lögfræðingar muni fara yfir málið strax eftir helgina.

„Við náttúrulega gáfum út það síðasta haust um að bændur skyldu gæta að girðingum og ég held að þeir hafi gert það, og tekið þeirri áskorun, og ég held að í Flatey á Mýrum séu girðingar almennt í mjög góðu ásigkomulagi," segir Hjalti Þór

Kærendurnir tveir, Árni Stefán Árnason og Óskar H. Valtýsson, voru í hópi fólks sem fór á svæðið í vetur til að ræða við bændur og hreinsa ónýtar girðingar.

Enginn hinna kærðu hafði fengið kæruna í hendur þegar fréttastofa hafði fyrst samband við þá í gær.

„En okkur finnst náttúrulega sérkennilegt að við heyrum fyrst af kærunni í gegn um fjölmiðla, og þá spyr ég mig að því hvort menn ætli að reka málið í gegn um fjölmiðla en ekki í gegn um dómstóla," segir Hjalti.

Þá vekur Hjalti athygli á að bændur á svæðinu sendu sveitarfélaginu áskorun fyrir nokkrum dögum, um að ráðast í rannsóknir á beitarþoli á þeim svæðum sem hreindýr halda sig.

„Og síðan á grunni niðurstöðu rannsóknarinnar að fjölda dýra yrði stýrt í samræmi við rannsónir á beitarþoli svæðanna myndi gefa af sér því það er þekkt að nokkur dýr hafa fallið úr hor undanfarna daga, þannig að núna, þessi ákæra um að dýr hafi fallið vegna þess að þau hafi flækt sig í girðingum og drepist þess vegna, þá er líka jafn mikilvægt að fjalla um hvernig þau hafa það almennt séð," segir Hjalti.



Athugið. Vísir hvetur lesendur til að skiptast á skoðunum. Allar athugasemdir eru á ábyrgð þeirra er þær rita. Lesendur skulu halda sig við málefnalega og hófstillta umræðu og áskilur Vísir sér rétt til að fjarlægja ummæli og/eða umræðu sem fer út fyrir þau mörk. Vísir mun loka á aðgang þeirra sem tjá sig ekki undir eigin nafni eða gerast ítrekað brotlegir við ofangreindar umgengnisreglur.

Fleiri fréttir

Sjá meira


×