Körfubolti

Ginobili ekki með á HM

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Manu Ginobili, leikmaður San Antonio Spurs, verður ekki með argentínska landsliðinu á HM í körfubolta sem hefst þann 30. ágúst næstkomandi.

Ginobili, sem er 37 ára, hefur verið að glíma við álagsmeiðsli í hægri fæti síðan í úrslitakeppni NBA-deildarinnar.

Ginobili hefur verið lykilmaður í argentínska landsliðinu frá því hann lék sinn fyrsta landsleik árið 1998.

Hann varð Ólympíumeistari með Argentínu árið 2004 eftir sigur á Bandaríkjunum í úrslitaleik. Fjórum árum seinna unnu Ginobili og félagar til bronsverðlauna á Ólympíuleikunum í Peking.

Ginobili hefur fjórum sinnum orðið NBA-meistari með San Antonio, síðast í vor.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×