Lífið

Gillz gefur út nýtt jólalag

Kjartan Atli Kjartansson skrifar
Hér má sjá skjáskot úr nýja myndbandinu.
Hér má sjá skjáskot úr nýja myndbandinu.
Egill Einarsson, einnig þekktur sem Gillz og DJ Muscleboy, var rétt í þessu að frumflytja nýtt jólalag í útvarpsþættinum FM95Blö sem er á dagskrá FM957 á föstudögum.

Lagið ber titilinn MUSCLEBELLS og naut Gillz aðstoðar strákanna í StopWaitGo við gerð lagsins.

Hér að neðan má sjá myndbandið við lagið.



Egill tilkynnti um útgáfu lagsins á Facebook-síðu sinni. Þar sem hann sagði meðal annars:

„Gleðifréttir! Ég hef aldrei verið mikið jólabarn og ég held að ég sé loksins búinn að fatta afhverju. Það hefur aldrei verið gert gott jóla-teknólag. Og mér finnst flest öll jólalög leiðinleg.“






Fleiri fréttir

Sjá meira


×