Lífið

Gillz, Hjálmar Örn og Þórunn Antonía fara á kostum í nýjum sketsaþætti

Stefán Árni Pálsson skrifar
Skemmtilegur þáttur á ferð.
Skemmtilegur þáttur á ferð.
Krakkarnir í Áttunni hafa farið af stað með nýja grínsketsaþætti og kom fyrsti þátturinn út í gær.

Þeir bera nafnið NeiNei. Þættirnir verða fjórir talsins og að þessu sinni koma þrír þekktir gestaleikarar við sögu.

Um er að ræða Egil Einarsson, Þórunn Antonía og Hjálmar Örn, en öll fara þau á kostum í þættinum.

Áttan er samfélagsmiðlamerki sem hefur það að leiðarljósi að koma ungu fólki á framfæri. Áttan gefur út efnið sitt á Facebook, Snapchat og Instagram en hér að neðan má sjá fyrsta þáttinn í heild sinni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×