Glamour

Gigi Hadid valin fyrirsæta ársins

Ritstjórn skrifar
Gigi var ein af sigurvegurum kvöldins í gær.
Gigi var ein af sigurvegurum kvöldins í gær. Mynd/Getty
Gigi Hadid var stödd á bresku tískuverðlaununum í gærkvöldi þar sem hún vann titilinn fyrirsæta ársins. Í tilefni kvöldsins klæddist hún sérhönnuðum Atelier Versace kjól.

Ferill Gigi hefur svo sannarlega verið á flugi seinustu tvö ár en á þessu ári gekk hún tískupallana fyrir fjölmörg tískuhús, gekk Victoria's Secret tískupallinn, hannaði skó ásamt Stuart Weitzman sem og hannaði heila fatalínu ásamt Tommy Hilfiger. 

Gigi með verðlaunin ásamt Donatellu Versace.Myndir/Getty





×