Enski boltinn

Giggs orðaður við Swansea

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ryan Giggs er orðaður við stjórastöðuna hjá Swansea City í breskum fjölmiðlum.

Swansea hefur aðeins unnið einn leik á tímabilinu og staða Ítalans Francesco Guidolin þykir ótrygg.

Giggs er án starfs sem stendur en hann hætti hjá Manchester United í sumar eftir komu José Mourinho.

Huw Jenkins, stjórnarformaður Swansea, hefur áhuga á að fá Giggs til starfa á meðan bandarískir eigendur félagsins vilja gefa Guidolin meiri tíma, enda tímabilið nýhafið.

Swansea féll úr leik fyrir Manchester City í 3. umferð enska deildarbikarsins í gærkvöldi. Liðin mætast aftur í 6. umferð ensku úrvalsdeildarinnar á laugardaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×