Bílar

Giftu sig í sýningarsal Porsche

Finnur Thorlacius skrifar
Champions Porsche sýningarsalurinn í Flórída og gifting í vændum.
Champions Porsche sýningarsalurinn í Flórída og gifting í vændum.
Það er misfrumlegt staðarvalið hjá fólki fyrir giftingarathöfn sína en hjón ein í Flórída völdu sýningarsal Porsche þar á bæ fyrir sína giftingu. Nokkuð frumlegt staðarval þar og í leiðinni glæsilegt. Sýningarsalur Champion Porsche í Flórída er ansi stór, eða 22 ekrur og því væsti ekki um gesti í veislunni flottu.

Upphaflega var meiningin að fjarlægja alla sýningarbíla Porsche úr salnum en turtildúfurnar vildu alls ekki að neinn hinna fögru bíla yrði fjarlægður úr salnum. Boðskortin í veisluna voru heldur ekki af fátæklegri gerðinni heldur voru það stálskildir með Porsche merkinu þar sem staðarval og nöfn tilvonandi hjóna kemur fram.

Þá voru kökurnar sem bornar voru fram í veislunni skreyttar með Porsche merkinu og með því undirstrikuð aðdáun hjónanna á glæsimerkinu. Myndirnar hér að neðan segja meira en mörg orð, en giftingin fór fram 30. desember síðastliðinn.

Nöfn ógiftu hjónanna á gólfborða við inngang salarins.
Bílarnir skemmdu lítið glæsileikann við giftinguna, nema síður væri.
Einn Porsche bílanna skreyttur í tilefni dagsins.
Glæstir bílar í glæstum sal.
Boðskortið.
Brúðurin með glæisilega innkomu.
Gestir veislunnar.
Kökur skreyttar Porsche merkinu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×