Lífið

Giftist körfuboltamanni um helgina

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Leikkonan Gabrielle Union giftist körfuboltamanninum Dwayne Wade í kastalanum Chateau Artisan í Miami á laugardaginn.

Þemað í brúðkaupinu voru litirnir svartur og hvítur og klæddist Gabrielle brúðarkjól frá Dennis Basso. Dwayne klæddist sérsaumuðum jakkafötum frá DSquared2.

Tónlistarmaðurinn John Legend tróð upp í veislunni en það var Dwayne sem sá um mestan undirbúning herlegheitanna.

Dwayne bað Gabrielle í desember í fyrra eftir fjögurra ára samband.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×