Lífið

Ghomeshi kærður

jian ghomeshi - man fífil sinn fegurri. nordicphotos/getty F79261114 ghomeshi
jian ghomeshi - man fífil sinn fegurri. nordicphotos/getty F79261114 ghomeshi
Kanadíski útvarpsmaðurinn Jian Ghomeshi hefur verið kærður fyrir kynferðisbrot. Hann stjórnaði þætti á CBC-stöðinni en var rekinn í október eftir að stjórnendum stöðvarinnar barst myndskeið þar sem hann sást skaða konu. Goemshi skrifaði langt bréf á Facebook þar sem hann hélt því fram að allt hafi farið fram með samþykki konunnar. Ghomeshi kærði gömlu vinnuveitendur sínar í fyrstu fyrir trúnaðarbrest eftir brottreksturinn en hann hefur nú dregið lögsóknina til baka.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×