Glamour

Geysir frumsýnir vetrarlínuna með pompi og pragt

Ritstjórn skrifar
Erna Einarsdóttir, yfirhönnuður Geysis.
Erna Einarsdóttir, yfirhönnuður Geysis.
Íslenska fatamerkið Geysir ætlar að frumsýna glænýja haust - og vetrarlínu sína með pompi og pragt í Iðnó annað kvöld en þetta er í fyrsta sinn sýning Geysis af þessu tagi.

Húsið opnar klukkan átta og sýningin hefst stundvíslega kl. 20:30. Gleðin heldur svo áfram fram eftir kvöldi. Fatalínan verður svo til sölu í verslunum Geysis strax daginn eftir, eða laugardaginn 17. september. 

Yfirhönnuður Geysis er Erna Einarsdóttir er eitt helsta sérkenni líunnar er íslenska ullin. Erna nam við Gerrit Rietveld Akademíuna í Amsterdam og Central Saint Martins í London. Hún sneri aftur til Íslands og hóf störf hjá Geysi árið 2013 eftir stutt stopp í París hjá Saint Laurent þar sem hún starfaði undir Hedi Slimane. Vetrarfatalínan 2016 er önnur fatalína hennar fyrir Geysi.

Fatnaðurinn er innblásinn af íslensku konunni og hennar daglega lífi í borginni, með sterkum skírskotunum í íslenska prjónahefð. Geysir hefur alla tíð lagt áherslu á gæði og með nýju fatalínunni blandast hágæðaefni líkt og móher, silki, alpaca og hör fallega innan um íslensku ullina. Á sama tíma og Erna leitar í íslenska fatahefð er fatnaðurinn hannaður með nútíma konu í huga.

Fyrir þá sem komast ekki í Iðnó annað kvöld geta fylgst með sýningunni í beinni hér á Glamour á morgun. Spennandi!


Tengdar fréttir






×