Tónlist

Getur spilað ellefu mismunandi útgáfur af laginu Africa með Toto

Stefán Árni Pálsson skrifar
Seth er heldur betur flinkur á hljómborðinu.
Seth er heldur betur flinkur á hljómborðinu.
Lagið Africa með sveitinni Toto kom út árið 1982 og sló rækilega í gegn og hefur það í raun notið vinsælda síðan þá.

Tónlistarmaðurinn Seth Everman heldur úti nokkuð skemmtilegri YouTube síðu en í nýjasta myndabandi hans má sjá þennan snjalla hljómborðsleikara spila lagið í ellefu mismunandi útgáfum.

Útkoman heldur betur mögnuð eins og sjá má hér að neðan.

Hér að neðan má hlusta á upprunalega lagið





Fleiri fréttir

Sjá meira


×