Innlent

Geta loksins byrjað nýtt líf

Una Sighvatsdóttir skrifar
Framtíðin er björt hjá sýrlenskri flóttafjölskyldu sem í dag var veitt dvalarleyfi af mannúðarástæðum eftir 8 mánaða bið upp á von og óvon. Hjónin eru komin með vilyrði fyrir vinnu og eiga von á sínu þriðja barni.

Stöð tvö hitti þau Wael Aliyadah og Feryal Aldahas síðast í desember þegar Útlendingastofnun var afhent tæplega 5000 undirskriftir við beiðni um að mál fjölskyldunnar fengi efnislega meðferð. Þeim hafði verið tilkynnt að þau yrðu send aftur til Grikklands, þar sem þau bjuggu á götunni um tíma eftir að hafa flúið stríðið í Sýrlandi.



Elín Mjöll Jónasdóttir leikskólastjóri leysti fjölskylduna út með blómum og hamingjuóskum í lok skóladagsins í dag. Stelpurnar hafa verið á leikskólanum síðan í október og líkar vel.
Fagnað á leikskólanum

Í dag fékk fjölskyldan hinsvegar dvalarleyfi af mannúðarástæðum. Gleðin var allsráðandi þegar hjónin sóttu dætur sínar á leikskólann í dag, líka hjá starfsfólkinu, sem afhenti þeim blómvönd skreyttan íslenska fánanum í tilefni dagsins.

Elín Mjöll Jónasdóttir leikskólastjóri segir að telpurnar tvær, þær Jouli og Jana, hafi notið sín vel á leikskólanum, eignast vini og séu mjög opnar fyrir því að læra íslensku. „Við erum búnar að hafa þær hérna síðan í október og þetta var bara gleðistund. Fyrir alla,“ segir Elín.

Þegar Wael Aliyadah fylgdi dætrum sínum á leikskólann í morgun vissi hann ekki að þegar hann sækti þær aftur síðdegis yrðu þau búin að fá dvalarleyfi á Íslandi.
Mannúðarsjónarmið þurfa að vera rík

Wael segist ekki hafa vitað á hverju var von í morgun. „Ég vakna snemma alla daga til að fara með dætur mínar í leikskólann klukkan átta. Og konan mín hringdi í mig og sagði mér að lögmaðurinn okkar hefði haft samband frá Rauða krossinum. Konan mín var hrædd um að nú fengjum við slæm tíðindi en ég sagði að það gæti ekki verið. Nú erum við svo hamingjusöm, því undanfarna mánuði höfum við beðið þess að verða send burt frá Íslandi. Við vorum hrædd."

Dvalarleyfi af mannúðarástæðum er aðeins veitt í undantekningartilvikum þegar umsókn um hæli hefur verið synjað, ef rík ástæða þykir til vegna félagslegra aðstæðna. Wael og Feryal eru hamingjusöm á Íslandi en þeim hefur þótt erfitt að þurfa að sitja aðgerðarlaus í allan vetur.

Telja sig nú nógu örugg til að eignast annað barn

Nú segjast þau loksins geta byrjað nýtt líf. Wael fékk hjálp íslenskrar fjölskyldu við að sækja um vinnu og segist þegar hafa fengið starf, þar sem hann geti byrjað um leið og þeim hafi verið úthlutað kennitölu. Og það eru ekki einu gleðitíðindin, því hjónin eiga nú von á sínu þriðja barni.

„Áður, á meðan við vorum í Sýrlandi, kom það ekki til greina en núna getum við leyft okkur að eignst þriðja barnið. Við elskum börn," segir Wael.


Tengdar fréttir

Fá dvalarleyfi af mannúðarástæðum

Sýrlensku hjónin Wael Aliyadah og Feryal Aldadash og dætur þeirra tvær, Jana og Joula, hafa fengið dvalarleyfi hér á landi af mannúðarástæðum.

Hátt í 5000 manns skoruðu á Útlendingastofnun

Það væri ómannúðlegt af íslenska ríkinu að senda sýrlenska flóttafjölskyldu í bágar aðstæður á Grikklandi, segir prestur innflytjenda. Útlendingastofnun var í dag afhent áskorun um að taka málið til efnislegrar meðferðar.

Voru á vergangi í Grikklandi

Wael Aliyadah og Feryal Aldahash voru nauðbeygð til að sækja um hæli í Grikklandi. Aðbúnaður þar var slæmur og oft var fjölskyldan á vergangi. Þau flúðu til Íslands til að tryggja öryggi dætra sinna, Jönu og Joulu.

Brjóta Barnasáttmála með brottvísun

Börn eiga samkvæmt alþjóðareglum rétt á vernd og öryggi. Íslenska ríkið ber ábyrgð á velferð barna sem hér eru stödd, þótt þau hafi hvorki landvistarleyfi né ríkisborgararétt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×