Innlent

Geta ekki sagt til með framhaldið í Kötlu

Jóhann K. Jóhannsson skrifar
Katla er ein stærsta eldstöð landsins en þar hefur verið nokkuð mikil skjálftavirkni undanfarið.
Katla er ein stærsta eldstöð landsins en þar hefur verið nokkuð mikil skjálftavirkni undanfarið. vísir/vilhelm
Almannavarnir og sérfræðingar Veðurstofu Íslands geta með engu móti spáð fyrir um hvað komi til með að gerast í Kötlu en verulega hefur dregið úr skjálftavirkni á svæðinu frá því í gær. Lokanir sem Lögreglustjórinn á Suðurlandi í samvinnu við Ríkislögreglustjóra settu á í gær koma til með að vera áfram í gildi þar til annað verður ákveðið.

Lögreglustjórinn á Suðurlandi ákvað í gær að setja lokanir á veginn að Sólheimajökli og bannaði jökulgöngur á svæðinu vegna þeirra óvissu sem er á svæðinu. En óvissustig var sett á í gær vegna þeirra jarðhræringa sem verið hafa á svæðinu.

Sérfræðingar hafa verið við störf við Mýrdalsjökul í dag og voru sigkatlarnir í jöklinum mældir úr lofti. Skjálftamælar í Mýrdalsjökli sýna allt aðrar hreyfingar í dag heldur en í gær en verulega dró út skjálftavirkni í Kötlu í nótt.

„Í Kötlu mældust í sjálfvirka kerfinu 230 skjálftar í  gær en það eru svona um 20 núna. Þannig að þetta hefur bara verið frekar rólegt það sem af er. Eins og þú sérð hérna þá er þetta Suðurlandið. Hér var allt í „tikkum“ í gær en hér er núna bara mjög lítið þannig að þetta er allt annað í dag,“ segir Sigþrúður Ármannsdóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands.

Þrátt fyrir að dregið hafi úr skjálftavirkni á svæðinu taka yfirvöld enga áhættu og hafa meðal annars verið í sambandi við ferðaþjónustuaðila sem tóku ákvörðun um að engar ferðir yrðu farnar með ferðamenn upp á Sólheimajökul í dag.

„Flest þeirra voru á því að þetta væri skynsamleg leið og niðurstaðan var sú að við lokuðum þessu og allir voru svona þokkalega sáttir með það,“ segir Víðir Reynisson, verkefnasstjóri almannavarna hjá Lögreglunni á Suðurlandi.

Þessi ákvörðun verður svo endurskoðuð með ferðaþjónustuaðilum í kvöld. Óvissustig líkt og lögreglustjórinn á Suðurlandi tilkynnti um í gær þarf ekki að þýða að gos verði heldur er um viðbúnaður yfirvalda aukinn.

„Þetta er bara notað í kringum náttúruhamfarir þegar það þarf að vakta þær frekar en gagnvart almenningi breytir þetta voða litlu annað en það að það er bara gott að menn viti að það er frekari vöktun á þessum þáttum,“ segir Víðir.Þurfi að hækka viðbúnaðarstig vegna hugsanlegs gos hefur það í för með sér frekari lokanir á svæðinu og rýmingar á einhverjum svæðum sem gætu talist í hættu.

Komi til eldgos í Kötlu verða alir þeir sem eru á svæðinu látnir vita með SMS skeyti frá Neyðarlínunni.

Og eru þau skilaboð send út með einföldum hætti á alla síma innan þess svæðis sem afmarkað er. Fréttastofa fékk að sjá í dag hvernig kerfið virkar og miðað við það svæði sem afmarkað í kringum Kötlu þá voru gífurlega margir farsímar á svæðinu í dag. En hvernig má búast við að framhaldið verði?

„Lang líklegast er í sjálfu sér að þessi lota bara deyi út og það verði ekkert meira núna en við getum ekki annað en tekið þetta alvarlega því að hinn kosturinn er að þetta endi í gosi og það er náttúrulega gríðarlega stór atburður,“ segir Víðir.

 


Tengdar fréttir

Lokað fyrir umferð að Sólheimajökli

Lögreglan á Suðurlandi hefur tekið ákvörðum um að loka fyrir umferð á veginum að Sólheimajökli vegna yfirstandandi jarðskjálftahrinu í Mýrdalsjökli.

Katla lætur vita af sér

Skjálfti um 3,9 á Richter mældist í sunnanverðri Kötluöskjunni í gær. Skjálftinn er sá stærsti í nokkrar vikur en mikil virkni stórra skjálfta hefur verið í Kötlu undanfarið. Þann 29. ágúst mældust stærri skjálftar, eða 4,5 og 4,6 á Richter. Það voru sterkustu skjálftar sem höfðu fundist í Kötlu síðan 1977.

Óvissustigi lýst yfir vegna Kötlu

Ríkislögreglustjórinn í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi hefur lýst yfir óvissustigi vegna jarðskjálfta í Mýrdalsjökli




Fleiri fréttir

Sjá meira


×