Glamour

Gestir Chanel í sínu fínasta pússi

Ritstjórn skrifar
Tískusýning Chanel á Paris Ritz hótelinu fór fram í gær við mikinn fögnuð. Fjölmargir gestir voru þar staddir en engin eiginleg fremsta röð var á sýningunni heldur voru allir með góð sæti víðsvegar um te-salinn á hótelinu og fyrirsæturnar löbbuðu á milli borða. 



Á meðal gesta voru Caroline Prinsessa af Hanover, dóttir Grace Kelly, Anna Wintour, Pharrell Williams og margir fleiri sem eru áberandi innan tískubransans. 

Vanessa Paradis fylgdist stolt með dóttur sinni, Lily-Rose Depp.
Karl Lagerfeld og Lily-Rose Depp.
Parrell gefur Carine Roitfeld fimmu.
Amber Valletta mætti í Chanel jakka við leðurbuxur.
Caronline af Hanover, dóttir Grace Kelly, og Franca Sozzani ásamt Önnu Wintour.
Willow Smith alltaf jafn töffaraleg.
Maður kvöldsins, Karl Lagerfeld.

Tengdar fréttir






×