Lífið

Gervibrjóst gera þig ekki hamingjusamari

Lilja Katrín Gunnarsdóttir skrifar
Diane von Furstenberg.
Diane von Furstenberg. vísir/getty
Fatahönnuðurinn Diane von Furstenberg byrjar með raunveruleikaþáttinn House of DVF á sunnudaginn á sjónvarpsstöðinni E!. Hún fékk hugmyndina að þættinum þegar hún vildi ráða ungt fólk til að kynna merki sitt á samfélagsmiðlum og viðburðum um heim allan.

„Ekkert var æft. Allt er alvöru,“ segir Diane í viðtali við Cosmopolitan en í þáttunum er fylgst með ungum konum sem sækja um vinnu hjá henni.

Diane hefur mjög sterkar skoðanir á raunveruleikaþáttum.

„Það eru til svo margir raunveruleikaþættir og margir þeirra eru skeflilegir. Í þáttunum er konum sagt að þær vinni ef þær eru tíkur og að gervibrjóst geri þig hamingjusama og annað í svipuðum dúr. Ég vil halda því andstæða fram,“ segir fatahönnuðurinn. 






Fleiri fréttir

Sjá meira


×