Lífið

Gervais: Það versta við að eldast þegar eistun haga sér eins og pendúll

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Fallon vissi ekki hvernig hann ætti að haga sér.
Fallon vissi ekki hvernig hann ætti að haga sér. Vísir
Það eru ekki allir hrifnir af því að eldast þrátt fyrir að það sé óumflýjanlegur hluti af því að vera til. Ricky Gervais virðist vera einn af þeim.

Hann var gestur í spjallþætti Jimmy Fallon á dögunum og tók sér góðan tíma í það að svara hinum ýmsu spurningum frá gestum og gangandi. Meðal þess sem hann var spurður að var hvað það væri það versta við að eldast.

Svarið var einfalt: Eistu sem haga sér eins og pendúll. Nánari útskýringu á hugtakinu má sjá í myndbandinu hér að neðan en útskýringar Gervais bæði hneyksluðu og skemmtu áhorfendum á sama tíma.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×